ALLIR sem æfa fótbolta í 6. fl 5. fl og 4 fl karla og kvenna eiga að mæta í íþróttahúsið þriðjudaginn 22. mai kl 18:00 til að fara að safna áheitum vegna áheitahlaupsins. Þar verður þeim raðað í hópa og þau fá götur til að safna í.
Þau geyma svo miðana hjá sér og byrja að rukka strax á laugardag eða við fyrsta tækifæri. Ef eitthvað er óljóst hafið þá samband við Moniku í síma 862-1765 eða Pétur í síma 894-8183
Við viljum minna ykkur á foreldrafundina sem verða á morgun sem hér segir:
Íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 17:30
Félagsheimilinu í Grundarfirði kl 19:30
Grunnskólanum við Borgarbraut í Stykkishólmi, mötuneytinu kl 21:30
Þetta eru mjög mikilvægir fundir, farið verður yfir samstarfið, starfið í sumar kynnt, afhent tenglablöð, áheitahlaupið sem verður nk. fös kynnt og nýji Snæfellsnes búningurinn sýndur svo fátt eitt sé nefnt.
Faxaflóamótinu hjá 3.fl ka og 4. fl ka er lokið. Það er ekki hægt að segja annað en það hafi gengið upp og niður, bæði að komast á staðinn og úrslit leikja.
En þetta var mjög góð æfing fyrir alla fyrir sumarið og við því reynslunni ríkari.
Það hefur verið ákveðið að halda foreldrafundi til að kynna samstarfið og starfið í sumar betur. Að auki verður nýr keppnisbúningur Snæfellsness sýndur.
Foreldrafundirnir verða mánudaginn 21. mai sem hér segir:
Í Íþróttahúsinu í Snæfellsbæ kl 17:30
Í Grundarfirði í Félagsheimilinu kl 19:30
Í Stykkishólmi í Grunnskólanum Borgarbraut Helgafellsálmunni kl 21:30
Allir meðlimir fótboltaráðs HSH mæta á alla fundina auk þeirra þjálfara sem búa á hverjum stað.
Einnig hefur verið ákveðið að krakkarnir hlaupi áheitahlaup föstudaginn 25. mai. Það fyrirkomulag verður kynnt á foreldrafundunum.
Það þarf ekkert að fara mörgum orðum um það hversu mikilvægt það er fyrir alla aðila að foreldrar sýni starfi barna sinna áhuga, því gerum við ráð fyrir mjög góðri fundarsókn.
MA
Þar sem krakkarnir í þessum flokkum hafa ekki haft sérlega mikið að gera í vetur (meira að segja svo lítið að foreldrarnir eru farnir að kvarta sáran) hefur verið ákveðið að halda mót hér í Stykkishólmi miðvikudaginn 16. mai kl 18.00.
Hugmyndin er að þjálfari hvers flokks raði þeim í lið, krakkarnir fari í búninga, spili og hafi gaman. Að mótinu loknu munum við svo grilla saman.
Leiknum sem átti að vera á morgun hefur verið FRESTAÐ til sunnudagsins 6. mai á Hellissandsvelli kl 17:00 að ósk Grindvíkinga. Þetta kemur sér ágætlega fyrir okkur því okkar menn verða hist og her á laugardaginn en verða vonandi til taks á sunnudaginn.
Mæting er í búningsaðstöðu mfl Víkings í Ólafsvík (hjá gömlu sundlauginni) kl 16:00.
Farið verður héðan frá Bensó kl 15:00
Síðasti leikur 4. fl ka á Faxaflóamótinu verður laugardaginn 5. mai á móti Grindavík á Hellissandsvelli kl. 13:00.
Mætiing kl 12:00 í búningsaðstöðu mfl Víkings í Ólafsvík (hjá gömlu sundlauginni). Farið verður héðan frá Bensó kl 11:00
Rabbi og Gummi (bróðir Margeirs) keyra.
Það er leikur hjá 4. fl ka á morgun 1. mai á móti Ægi/Hamri á Þorlákshafnarvelli kl 13.00. Það verður farið á Skipavíkurrútunni og bílstjóri er Guðjón Hjaltalín.
Mæting er við íþróttahúsið kl 8:45. Gjaldið í rútuna er kr 2000 og greiðist til bílstjóra fyrir brottför. Strákarnir utan af Nesi hitta ykkur á Vatnaleiðinni.
Strákarnir þurfa að hafa með sér nesti til að borða fyrir leikinn og vasapening eða nesti til að borða eftir leikinn.