a / A+
 
 


Smelltu hér til að kynna þér Aga- og siðareglur Snæfells

Fótboltafréttir - 30. júlí 2007
3. fl ka Leikur á morgun

3. fl ka leikur á morgun við Gróttu á Gróttuvelli kl 20:00.

Víkingsrútan fer frá Íþróttahúsinu í Ólafsvík kl 15:00, frá N1 í Grundarfirði kl 15:20 og frá Vatnaleið kl 15:40.



Fótboltafréttir - 29. júlí 2007
Undirbúningur

Nú fer að fara í gang undirbúningur hjá þeim sem fara á  Unglingalandsmótið á Höfn í Hornafirði. Vil viljum minna þá á sem eiga Snæfellsnes galla að hafa þá með og vera í buxunum í skrúðgöngunni, við jakkann sem þið fáið afhentan á Höfn.

Ef það verður kalt er mjög snjallt að vera í flísbuxum, sokkabuxum, leggings eða einhverju öðru hlýju innan undir Snæfellsnes buxunum, þær eru ekki mjög hlýjar.

 

Einnig viljum við hvetja alla foreldra, systkini, afa, ömmur, frændur og frænkur, sem eiga HSH peysur frá í fyrra að koma með þær og ganga í þeim alla daga á mótinu.

Þá verðum við fyrst sýnileg á svæðinu !! 

En það er best að taka það fram að aðeins keppendur í jakka mega fara í skrúðgönguna.



Fótboltafréttir - 28. júlí 2007
3. fl kv ATHUGIÐ
Það var að koma tilkynning frá KSI um að Skallagrímur er búinn að draga lið 3. fl kv úr keppni á Íslandsmótinu. Leikurinn sem þið áttuð við þær mánudaginn 30. júlí verður því ekki.


Fótboltafréttir - 28. júlí 2007
Keppningsgjöld á Unglingalandsmótið

Þeir sem EIGA EFTIR AÐ GREIÐA keppnisgjöldin á Unglingalandsmótð á Höfn í Hornafirði eru beðnir að gera það SEM FYRST og í ALLRA ALLRA SÍÐASTA LAGI 1. ÁGÚST því það er svo einfalt að  Unnur María fær keppnisgögnin EKKI AFHENT á Höfn nema við séum búin að borga keppnisgjöldin !!!  Og það er bara þannig að HSH hefur ekki efni á því greiða keppninsgjöldin fyrir fjölda manns. 



Fótboltafréttir - 25. júlí 2007
Úrslit hjá 3. fl ka

3. fl ka gerði 1 - 1 jafntefli við Keflavík á Ólafsvíkurvelli í kvöld.

Það var Brynjar Gauti Guðjónsson sem skoraði fyrir okkur og Ólafur Hlynur Illugason bjargaði okkur frá því að fá á okkur annað mark þegar hann bjargaði á línu.

Fyrir leikinn var Keflavík í efsta sæti riðilsins en núna er Njarðvík efst, Keflavík í öðru sæti og við í því þriðja en bæði við og Keflavík eigum leik til góða.



Fótboltafréttir - 25. júlí 2007
3. fl kv Samæfing og breyting á leik

Það verður samæfing hjá 3. fl kv í Grundarfirði fimmtudaginn 26. júlí  kl 17:15

 

Leikurinn við FH sem átti að vera mánudaginn 13. ágúst verður laugardaginn

11. ágúst  á Ólafsvíkurvelli kl 19:00 þar sem stór hluti liðsins okkar verður í Færeyjum á mánudeginum.



Fótboltafréttir - 23. júlí 2007
Úrslit hjá 4. fl kv, 3. fl kv og 2. fl ka

4. fl kv tapaði 6 - 1 fyrir Gróttu á Stykkishólmsvelli í kvöld. Það var Alma Rún Kristmannsdóttir sem skoraði fyrir okkur.

3. fl kv tapaði ósanngjarnt 4 - 1 fyrir Stjörnunni á Stjörunuvelli í kvöld. Það var Björg Guðrún Einarsdóttir sem skoraði fyrir okkur.

2. fl ka gerði 3 - 3 jafntefli við Leikni / KB á Grundarfjarðarvelli á mánudaginn.

Brynjar Kristmundsson skoraði 2 mörk og Heimir Ásgeirsson skoraði 1 mark.



Fótboltafréttir - 22. júlí 2007
Leikir vikunnar

4. fl kv leikur við Gróttu á Stykkishólmsvelli mánudaginn 23. júlí kl 17:00

3. fl kv leikur við Stjörnuna á Stjörnuvelli mánudaginn 23. júlí kl 18:00

Víkingsrútan fer frá N1 í Grundarfirði kl 14:00 og frá Vatnaleið kl 14:20.

Bílstjóri er Jósep Magnússon. Kr 2000 greiðist til bílstjóra fyrir brottför.

Hadda hittir ykkur á vellinum kl 17:00 og segist hlakka til að sjá ykkur :-)

2. fl ka leikur við Leikni / KB á Grundarfjarðarvelli mánudaginn 23. júlí kl 20:00

3. fl ka leikur við Keflavik á Ólafsvíkurvelli miðvikudaginn 25. júlí kl 20:00

Mæting í alla leiki 1 klst fyrir leik.



Fótboltafréttir - 19. júlí 2007

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá á  Pæjumótið og Króksmótið.

Síðasti skráningardagur fyrir þessi mót er sunnudagurinn 22. júlí.

Það er enn hægt að skrá sig á unglingalandsmótið á Höfn en það er ALLS EKKI öruggt að viðkomandi fái jakka, því eins og margoft hefur komið fram var síðasti dagur til að vera öruggur með að fá jakka 16. júlí.


Meira...


Fótboltafréttir - 19. júlí 2007
Úrslit hjá 4. fl kv, 4. fl ka, 5. fl kv, 5. fl ka og 3. fl ka

4. fl kv gerði 1 - 1 jafntefli við Hamar á Grýluvelli í gær. Það var Erna Katrín Gunnarsdóttir sem skoraði fyrir okkur.

4. fl ka tapaði 10 - 2 fyrir Skallagrími á Skallagrímsvelli í gær. Það voru Snjólfur Björnsson og Alfreð Már Hjaltalín sem skoruðu fyrir okkur.

5. fl kv tapaði 5 - 1 fyrir KFR / Ægi á Þorlákshafnarvelli í kvöld. Það var Thelma Kristinsdóttir sem skoraði fyrir okkur.

5. fl ka A-lið tapaði 5 - 4 fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld. Það voru Kristinn Magnús Pétursson, Sigurbjörn Bjarnason, Aron Guðmundsson og Ármann Guðbjörnsson sem skoruðu fyrir okkur.

5. fl ka B-lið tapaði 2 -1 fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld. Það var Vignir Snær Stefánsson sem skoraði fyrir okkur.

3. fl ka vann Grindavík 6 - 1 á Grundarfjarðarvelli í kvöld.  Í fyrri hálfleik skoruðu

Arnar Már Hrannarsson og Rúnar Geirmundsson fyrir okkur og  Brynjar Kristmundsson skoraði úr víti. Í seinni hálfleik skoruðu Brynjar Gauti Guðjónsson, Sindri Hrafn Friðþjófsson 1 mark hvor og að síðustu skoraði Brynjar Kristmundsson aftur.



Síða 22 af 36: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36