a / A+
 
 


Smelltu hér til að kynna þér Aga- og siðareglur Snæfells

Fótboltafréttir - 1. nóvember 2007
Dómaranámskeið verður haldið miðvikudaginn 7. nóvember kl 17:00 í Sögumiðstöðinni Grundarfirði.   Námskeiðið tekur um 2 og ½ tíma.

Félögin greiða námskeiðskostnaðinn.

Þeir sem ljúka námskeiðinu frá dómaraskírteini frá KSÍ.

 


Meira...


Fótboltafréttir - 1. nóvember 2007
Æfingar Héraðsmeistaranna frá og með 1. nóvember 2007 eru sem hér segir:

 

Þriðjudaga kl. 20.00 á gervigrasi

Fimmtudaga kl. 20.00 á gervigrasi eða inni

Laugardaga kl. 11.05 á gervigrasi


Meira...


Fótboltafréttir - 28. október 2007

Snæfellsnes samstarfið í fótbolta hélt uppskeruhátið sumarsins 24. okt sl. en samstarfið hefur nú staðið í 1 ár. Um 150 krakkar mættu á uppskeruhátíðina og skemmtu sér hið besta. 

Í upphafi samstarfsins var byrjað á því að hanna og kaupa nýja keppnisbúninga. Einnig var ákveðinn sameiginlegur utanyfirgalli.


Meira...


Fótboltafréttir - 17. október 2007
Uppskeruhátiðin ákveðin

Þá er búið að ákveða að uppskeruhátið fótboltasamstarfsins verður miðvikudaginn 24. október í Íþróttahúsinu í Ólafsvík kl 17:30 stundvíslega.

Það verður myndataka af öllum liðunum í keppnisbúningum, verðlaunaafhendingar, leikir í sal og veitingar.  

Allir eru velkomnir en einungis þeir sem voru að æfa í sumar fá viðurkenningar.

ATHUGIÐ að tónfundi Tónlistarskólans í Stykkishólmi sem átti að vera 24. okt hefur verið flýtt til þriðjudagsins 23. okt.



Fótboltafréttir - 10. október 2007
Uppskeruhátið sumarsins

Uppskeruhátið sumarsins er yfirvofandi, verið að leita að dagssetningu en gengur ekki mjög vel. Vikan 22. - 26. kemur sterklega til greina. 

Dagskrá:  Myndataka allra flokka í búningum, verðlaunaafhendinar, pizza, gos ofl.   Nánar auglýst síðar.



Fótboltafréttir - 3. október 2007
Ísland lék á móti Litháen í gær og vann leikinn 1 - 0. Það var Ólafur Karl Finnsen úr Stjörunni sem skoraði en hann og Bryjar Gauti eru þeir einu í liðinu sem eru 15 ára. 
Meira...


Fótboltafréttir - 30. september 2007
U-17 landsliðið í fótbotla með Brynjar Gauta innanborðs er núna úti í Serbíu í sól og hita, eiginlega of miklum hita til að spila fótbolta.
Meira...


Fótboltafréttir - 18. september 2007
Úrslit á Blönduósmótinu
Loksins er komið inn á flokkana hér til vinsti útslit leikja á Blönduósmótinu. Við erum búin að bíða eftir að fá úrslitn í allt sumar en erum orðin úrkula vonar um að fleiri  fáist, en okkur vantar enn úrslitin hjá 4.fl kv.   


Fótboltafréttir - 17. september 2007
Brynjar Gauti í U-17 landsliðið !!!

Þær frábæru fréttir voru að berast að Brynjar Gauti Guðjónsson hefur verið valinn í U-17 landsliðið og keppir með liðinu í undankeppni Evrópumótsins í Serbíu 27. sept. - 2. október. Hann og Brynjar Kristmundsson höfðu verið á æfingum með landliðs undirbúningshópnum undanfarið en nú hefur Lúkas Kostic landliðsþjálfari U-17 valið hópinn sem fer til Serbíu.

Brynjar Gauti verður á æfingum með landsliðinu 19. - 24. september áður en þeir halda út til Serbíu.  Þetta er stórkostlegur árangur hjá þessum frábæra íþróttamanni og óskum við honum INNILEGA TIL HAMINGJU OG GÓÐS GENGIS.

 

 



Fótboltafréttir - 16. september 2007
Úrslit hjá 4. fl kv

Síðasti leikur sumarsins var í gær í Ólafsvík þegar HK kom í heimsókn. Þessum leik var frestað einhvern tímann í sumar og voru allir orðnir úrkula vonar um að HK kæmi í leikinn. En þá hótaði KSI þeim 70 þús kr sekt ef þeir spiluðu ekki leikinn svo þeir stukku auðvitað upp í loftið og leiknum var komið á í gær, sem var reyndar mjög óheppilegt fyrir okkur þar sem helmingurinn af flokknum var í Vatnaskógi og þjálfarinn austur á landi að spila sjálfur. Til að ná í lið voru margar 5. fl stelpur kallaðar til leiks.

Leikurinn fór 11 - 0 fyrir HK.



Síða 18 af 36: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36