a / A+
 
 


Smelltu hér til að kynna þér Aga- og siðareglur Snæfells

Fótboltafréttir - 21. janúar 2008
Hadda er búin að velja hópinn sem fer á Íslandsmótið laugardaginn 26. janúar kl 14:30 í Seljaskóla. Þær sem fara eru:
Meira...


Fótboltafréttir - 21. janúar 2008
Boðun á úrtaksæfingu vegna U16

Þær sérlega ánægjulegu fréttir voru að berast, að enn einn leikmaður okkar hefur verið boðaður til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U16 landsliðs karla.

Þetta er  Ólafur Hlynur Illugason og óskum við honum til haminju með áfangann.



Fótboltafréttir - 19. janúar 2008
Breyting á æfingum hjá 4. og 5. fl ka á þriðjudögum í Stykkishólmi

Við vorum beðin að víxla æfingunum hjá 4. fl ka og 5. fl ka á þriðjudögum þar sem þær stönguðust á við körfuboltaæfingu hjá einhverjum. Nýja taflan er því svona:

4. fl ka kl 15:00 og 5. fl ka kl 16:00.  



Fótboltafréttir - 18. janúar 2008
Samæfingar hjá 5. fl kv og 3. fl kv

Það er samæfing hjá 5. fl kv í Stykkishólmi laugardaginn 19. janúar kl 15:00 - 16:30.

Það er samæfing hjá 3. fl kv í Ólafsvík sunnudaginn 20. janúar kl 13:00



Fótboltafréttir - 14. janúar 2008
Íslandsmótið hjá 3. fl kv og 5. fl kv

Þá eru dagssetningarnar loksins komnar á Íslandsmótið hjá stelpunum en reyndar vantar enn dagssetninguna hjá 4. fl kv.

3. fl kv leikur í Seljaskóla laugardaginn 26. janúar kl 16:15.

5. fl kv leikur í KR-húsinu laugardaginn 2. febrúar kl 13:15.

Þetta er 5 manna bolti (Futsal) og einungis má fara með 1 lið, og ekki fleiri en 12 leikmenn svo það er ljóst að í sumum flokkum verður að skilja einhverjar eftir heima.



Fótboltafréttir - 14. janúar 2008
Breytingar á stjórn foreldrafélagsins

Þær breytingar hafa orðið á stjórn foreldrafélags fótboltans í Stykkishólmi að Pétur Kristinsson og Daði Jóhannesson eru hættir og í þeirra stað komu þau Elín Guðrún Pálsdóttir og Ingi B Ingason.

Við þökkum Pétri og Daða þeirra störf og bjóðum Elínu og Inga velkomin til starfa.



Fótboltafréttir - 12. janúar 2008

3. fl ka og 4. fl ka léku á Íslandsmótinu í Futsal í dag. Í Futsal eru reglurnar mjög líkar og í venjulegum innanhúss fótbolta en sjálfur boltinn er miklu þyngri sem gerir það að verkum að hann skoppar nær ekkert. Fyrir vikið er hann mun sjaldnar útaf og leikurinn er skemmtilegri á að horfa.

3. fl ka lék í Laugardalshöllinni í dag.  Úrslitin urðu þessi:


Meira...


Fótboltafréttir - 7. janúar 2008
Samæfingar 3. fl ka 4. fl ka og 5. fl kv

Það verður samæfing hjá 3.fl ka í Íþróttahúsinu í Ólafsvík miðvikudaginn 9. janúar

kl 15:15  -  16:15.

Það verður samæfing hjá 4. fl ka í íþóttahúsinu í Ólafsvík fimmtudaginn 10. janúar

kl 18:15  -  19:15.  Þetta eru einu tímarnir sem tókst að fá fyrir mótið á laugardaginn.

Það verður samæfing hjá 5. fl kv í íþróttahúsinu í Ólafsvík sunnudaginn 13. janúar

kl 12:00.

Síðasta æfing var í Ólafsvík og því átti þessi æfing að verða í Stykkishólmi en því miður var íþróttahúsið þar ekki laust.



Fótboltafréttir - 7. janúar 2008

Jæja á morgun hefjast fótboltaæfingarnar að nýju eftir jólafrí og ekki veitir af því Íslandsmótið innanhúss er rétt handan við hornið.


Meira...


Fótboltafréttir - 3. janúar 2008
Samæfingar hjá 5. 6. og 7. fl kv

Það verður samæfing hjá 6. og 7. fl kv í íþróttahúsinu í Ólafsvík laugardaginn

5. janúar kl 11:30.

Það verður samæfing hjá 5. fl kv í íþróttahúsinu í Ólafsvík laugardaginn 5. janúar

kl 13:00.

 

Núna er allt að fara í gang, Íslandsmótið framundan og ýmislegt annað svo það eru væntanlegar fréttir hér inn á síðunni fljótlega. 

 



Síða 17 af 36: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36