Arnar Þór var valinn til að taka þátt í úrtökumóti á vegum KSÍ á Laugarvatni um síðustu helgi.
TIL HAMINGJU ARNAR ÞÓR
Sunnudaginn 7.febrúar fer fram úrslitakeppni Futsal hjá 3.fl ka og 4.fl kv
Mótið hjá strákunum fer fram í Austurbergi og hefst það kl 13:00. Riðilinn þeirra má sjá hér.
Stelpurnar í 4.fl spila í Smáranum og hefst þeirra mót einnig kl 13:00. Riðilinn þeirra má sjá hér.
Því miður komust strákarnir í 4.fl ka ekki áfram þrátt fyrir góðan árangur en aðeins eitt lið úr þeirra riðli komst áfram. ]
Arnar Þór Hafsteinsson Snæfelli var valinn í úrtakshóp fyrir U16 landsliðið í fótbolta.
Hann var á æfingum með hópnum um helgina.
4.fl ka spilaði í Ólafsvík og enduðu þeir í 2.sæti í riðlunum og komast því í úrslitakeppnina sem áætluð er að verði helgina 6.-7.febrúar. \
2.fl karla spilaði í Seljaskóla og komust þeir í úrslitaleikinn. Þar spiluðu þeir við lið Breiðabliks og töðuðu 2-1 og annað sætið raunin. Til hamingju með silfrið.
2.fl kvenna spilaði á sunnudaginn einnig í Seljaskóla. Þær byrjuðu á því að tapa naumlega fyrir Tindastól þegar lið Tindastóls náði að skora þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Þær töpuðu síðan 5-0 fyrir Val og gerðu 0-0 jafntefli við Víking R. Þær urðu því í neðsta sæti í sínum riðli og spiluðu um 7.sætið á mótinu. Þar unnu þær lið Neista frá Hofsósi 2-0 og 7.sæti raunin.
Á laugardag spilar 4.fl sinn riðil í Ólafsvík og hefst mótið kl 13:00
2.fl karla spilar í seljaskóla einnig á laugardag og hefst mótið kl 9:00.
Á sunnudag spila svo stelpurnar í 2.fl kv í Seljaskóla og eiga þær fyrsta leik kl 10:00.]
Stelpurnar í 4. og 3. fl spila í riðlakeppni Futsal um helgina. 3.fl kv spilar í Ólafsvík en 4.fl kv á Álftanesi. Bæði mótin hefjast kl 13:00.
Við sem sjáum um fótboltasamstarfið höfum ákveðið að halda ,, jólaball“ fyrir fótboltakrakkana á Snæfellsnesi. Strákarnir í hljómsveitinni Matti IDOL og Draugabanarnir ætla að spila skemmtilega tónlist fyrir krakkana. Það kostar ekkert inn og vonumst við til þess að sjá sem flesta!
Staður og stund: Fimmtudagur 3. desember 2009 Samkomuhúsið í Grundarfirði
5. flokkur og yngri mæta kl 18:30 og verða til 20:00
4. 3. og 2. fl mæta kl 20:30 og verða til kl 22:00
Gott væri ef þið krakkar tilkynntuð komu ykkar á bloggsíðum ykkar flokka til þess að við getum vitað ca. hvað margir eru að mæta
Foreldrar okkur vantar ykkar aðstoð við þetta og væri gott ef þið tilkynntuð ykkur á bloggsíðunum. Aðstoðin fellst aðalega í því að fylgjast með að allt fari vel fram J
Við viljum þakka Draugabönunum kærlega fyrir þetta framtak þeirra en þeir gefa vinnu sína við þetta ball!
verður haldin í íþróttahúsinu Stykkishólmi
sunnudaginn 27. sept. kl 14:00-17:00
Verðlauna afhending, Sundlaugarpartý, Grillaðar pylsur
Allir að mæta með góða skapið og í Snæfellsnesgöllunum sínum
Fótboltasamstarfið.
Mánudaginn 10. ágúst 5.fl ka í Grundarfirði kl 16:30
Miðvikudaginn 12. ágúst 6.fl ka í Grundarfirði kl 16:30
Fimmtudaginn 13. ágúst 4.fl ka í Grundarfirði kl 16:30