a / A+
 
 


Smelltu hér til að kynna þér Aga- og siðareglur Snæfells

KEPPENDALISTI - STYKKISHÓLMSPRETTUR

Sunnudaginn 1. júlí 2012 

401 Svana Huld Linnet 3SH Konur, 40+
402 Rúnar Már Jóhannsson ekkert Karlar, 16-39 ára
403 Gylfi örn Gylfason 3SH Karlar, 16-39 ára
404 Ellen Alfa Högnadóttir Umf.Snæfell Konur, 16-39 ára
405 Rafnkell Jónsson UMFN/3N Karlar, 40+
406 Sverrir Magnússon 3N Karlar, 40+
407 Finnbogi Gylfason 3SH Karlar, 40+
408 Margrét Pálsdóttir Ægir3 Konur, 16-39 ára
409 Viðar Bragi Þorsteinsson Þríkó Karlar, 16-39 ára
410 Nanna Jónsdóttir Ægir3 Konur, 16-39 ára
411 Helga Arnadottir UMF Leifur Heppni Konur, 16-39 ára
412 Rúnar Örn Ágústsson Ægir-þríþraut Karlar, 16-39 ára
413 Gunnar Örn Ástráðsson Keflavík Karlar, 16-39 ára
414 Bjarki Freyr Rúnarsson ekkert Karlar, 16-39 ára
415 Sigurður Ágústsson 3SNÆ Karlar, 40+
416 Guðmundur Þorleifsson 3SH Karlar, 40+
417 Íris Huld Sigurbjörnsdóttir 3SNÆ Konur, 40+
418 Alexander Arnarson HK Karlar, 16-39 ára
419 Sigurður S Nikulásson breiðablik Karlar, 16-39 ára
420 María Sæmundsdóttir Ægir 3þraut Konur, 16-39 ára
421 Stefanie Gregersen 3SH Konur, 16-39 ára
422 Anna Jóna Kjartansdóttir Ægir-þríþraut Konur, 16-39 ára
423 Stefán Guðmundsson 3SH / Team TRI Karlar, 16-39 ára
424 Guðmundur Vilhjálmsson Sjór Karlar, 40+
425 Steinn Jóhannsson 3SH Karlar, 40+
426 Ægir Emilsson 3N Karlar, 40+
427 Sigrún Björg Ingvadóttir Ægir3 Konur, 40+
428 Aðalsteinn I Erlendsson 3N Karlar, 16-39 ára
429 Torben Gregersen 3SH Karlar, 16-39 ára
430 Dóra Aðalsteinsdóttir UMFG Konur, 40+
431 Guðrún Sigurðardóttir Ægir-3þraut Konur, 16-39 ára

Keppni hefst kl. 9:30 sunnudaginn 1. júlí í sundlaug Stykkishólms

Sunnudaginn 1. júlí nk. verður fyrsta þríþrautarkeppnin haldin hér í Hólminum þegar 3SNÆ heldur svokallaða sprettþraut eins og sagt var frá í síðasta blaði Stykkishólmspóstsins.

Keppnin hefst kl. 9:30 í sundlaug Stykkishólms þar sem keppendur synda 400m, hlaupa svo út á skiptisvæðið, sem staðsett verður á svæðinu milli íþróttamiðstöðvar og skóla, og hjóla þaðan upp að Helgafells afleggjara og til baka samtals 10km og að endingu verður hlaupinn hringur í bænum sem mælist 2,7km (frá grunnskóla, Borgarbraut, Skúlagötu, Austurgötu, Hafnargötu, Silfurgötu, Aðalgötu upp að upplýsingaskilti þar sem er snúið og svo Aðalgötu, Borgarbraut og í mark!).

Hólmarar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta á staðinn og hvetja keppendur, bæði í sundinu og einnig í hjóla- og hlaupalegg. Þar sem þetta er sprettþraut þá ættu langflestir að ljúka keppninni á kannski 40-70mínútum, þannig að það er um að gera að mæta tímanlega og fylgjast með frá upphafi. Sjá kort af hjólaleið og hlaupaleið www.snaefell.is.

Keppnin er öllum opin (líka Hólmurum sem ekki eru í þríþrautadeild J ) og skráning er hafin á www.hlaup.com undir úrslit/forskráning, þátttökugjald kr. 2.000. Nánari upplýsingar gefur undirrituð en einnig má finna upplýsingar í skráningarflipa á hlaup.com.

Verðlaun verða veitt fyrir 1.-3. Sæti í tveimur aldursflokkum karla og kvenna og er fjöldi veglegra vinninga, auk útdráttarverðlauna.

Undirrituð vill að endingu nota tækifærið og þakka fyrirtækjum í Stykkishólmi og öðrum styrktaraðilum fyrir jákvæðar móttökur og veittan stuðning.

Með þríþrautarkveðju,

Íris Huld Sigurbjörnsdóttir,

formaður 3SNÆ

p.s. áfram er óskað eftir sjálfboðaliðum til að starfa á skiptisvæði, við brautargæslu o.s.frv. – áhugasamir hafi samband við Írisi í gsm 847-0229 eða netfang irishuldsig@simnet.is

Æfingar á vorönn 2012 3SNÆ æfir þessa dagana samkvæmt sex daga æfingaáætlun þar sem hver æfingavika inniheldur tvær sundæfingar, tvær hjólaæfingar, tvær hlaupaæfingar og svo styrktaræfingar að auki fyrir þá sem það vilja. Æfingatímar eru eftirfarandi: Sund: Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 5:30 til 7:00 í Sundlaug Stykkishólms. Þjálfari er María Valdimarsdóttir. Fyrst um sinn hefjast æfingar kl. 6:00, ræðst af lengd æfinga hverju sinni og verður tilkynnt þegar breytist. Hjól: Samhjól/spinning á sunnudögum kl. 11:00 - á eigin vegum á miðvikudögum. Hlaup: Samhlaup á laugardögum - á eigin vegum á mánudögum. Styrktaræfingar: Þriðjudaga og/eða fimmtudaga eftir vali hvers og eins. Æfingagjöld eru kr. 10.000,00 fyrir önnina. Félagar eru 14 talsins í janúar 2012. Þeim sem vilja kynna sér starfsemi deildarinnar og/eða slást í hópinn er bent á að setja sig í samband við 3SNÆ í netfangið: 3snaefell@gmail.com

3SNÆ

Þríþrautardeild Umf.Snæfells

 Frá keppnisferð 3SNÆ til Barcelona í Október 2011.

 

Stjórn þríþrautadeildar Snæfells 2011-2012:

 

Íris Huld Sigurbjörnsdóttir, formaður

Áslaug I. Kristjánsdóttir, ritari

Sigríður Elísabet Elisdóttir, gjaldkeri

 

Þríþrautadeild Umf. Snæfells (3SNÆ) var stofnuð formlega á aðalfundi félagsins 27. apríl 2011, stofnfélagar voru 10 talsins. 3SNÆ leggur stund á sund, hjólreiðar og hlaup. Æfingum er þannig háttað að deildin er með tvær sameiginlegar sundæfingar á viku í Sundlaug Stykkishólms, tvær hjólaæfingar, tvær hlaupaæfingar og svo styrktaræfingar að auki.

 

Þríþrautadeild er yngsta deildin innan Snæfells.